Innlent

Vélhjólamaður lést í árekstri

Vélhjólamaður lést eftir árekstur við fólksbíl nálægt Reykhólum fyrir ofan Miðhúsabrekku skömmu eftir miðnætti í nótt. Þyrla landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var kölluð út vegna slyssins. Þegar læknir frá Búðardal kom á staðinn var maðurinn látinn. Þyrlunni var snúið við þegar ljóst var að maðurinn var þegar látinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×