Innlent

Grunaður um ölvun

Karlmaður um tvítugt velti bíl sínum í Aðaldalshrauni á Norðausturvegi skammt sunnan Húsavíkur um klukkan sex í gærmorgun. Maðurinn var einn í bílnum þegar atvikið varð og slasaðist nokkuð við bílveltuna. Var hann því fluttur með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er maðurinn grunaður um að hafa verið ölvaður undir stýri. Nokkuð var af fólki á Húsavík í gærnótt vegna Mærudaga sem þar eru haldnir hátíðlegir. Að sögn lögreglu fóru hátíðahöldin vel fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×