Innlent

Ölvun í aðdraganda Fiskidagsins

Talsverð ölvun var á Dalvík í nótt og þurfti lögreglan á Akureyri að hafa sig alla við að stöðva slagsmál og önnur leiðindi eins og hún orðaði það sjálf. Þrír gistu fangageymslur á Dalvík eftir nóttina en Fiskidagurinn mikli, sem er í dag, byrjaði í raun í gærkvöld. Þá var einn fluttur til Akureyrar vegna aðildar að líkamsárásarmáli og annar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri vegna líkamsárásarinnar en ekkert hefur fengist uppgefið um líðan mannsins. Þá gisti einn í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri vegna óláta og ölvunar í miðbænum í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×