Innlent

Þriggja bíla árekstur við Sæbraut

Þriggja bíla árekstur varð við Sæbrautina í Reykjavík um fimmleytið í nótt. Þrír voru fluttir til skoðunar á slysadeild Landspítala en eru þó ekki taldir alvarlega slasaðir. Þá voru sjö ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur víðs vegar um borgina í nótt en lögreglan segir að öðru leyti hafi verið rólegt í miðbænum. Ólætin voru mest við Hamraskóla í Grafarvogi þar sem níu rúður voru brotnar. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en þrír piltar, sem sáust við skólann, liggja sterklega undir grun og segir lögreglan að haft verði uppi á þeim í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×