Innlent

Tveir slasaðir sjómenn sóttir

Tveir sjómenn slösuðust við störf sín í gær og hafa því þrír sjómenn slasast alvarlega í vikunni. Björgunarsveitarmenn frá Vík í Mýrdal sóttu annan sjómanninn á hjólabáti út í fiskibát undan ströndinni og þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hinn um borð í togarann Akureyrina vestur á Halamið í gærkvöld. Báðir björgunarleiðangrarnir gengu vel og voru báðir sjómennirnir fluttir á Landsspítalann. Hvorugur þeirra er í lífshættu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×