Innlent

30 grömm fundust við húsleit

Lögreglan í Hafnarfirði handtók í morgun karlmann á nítjánda ári. Hann hafði verið grunaður um fíkniefnasölu um hríð og var í morgun gerð húsleit hjá honum. Þar fundust þrjátíu grömm af eiturlyfjum: amfetamíni, kókaíni og hassi. Maðurinn játaði aðild að sölu, hald var lagt á efni og fjármuni og manninum sleppt í kjölfarið. Málið telst upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×