Innlent

Strollan af stað

Atvinnubílstjórar héldu fyrir stundu af stað á bílum sínum frá stæðinu neðan við Háskóla Íslands og aka sem leið liggur út úr borginni. Bílarnir sem eru tuttugu til þrjátíu, óku í nokkrum hollum og voru ýmist í halarófu eða hlið við hlið og töfðu þannig umferð. Lögregla fylgir bílunum í bak og fyrir en aðhefst ekki eins og er. Með þessu vilja bílstjórar mótmæla auknum álögum á atvinnubíla. Lögreglan hafði sagt að þessar aðgerðir yrðu ekki liðnar og að bílstjórarnir yrðu handteknir ef þeir tefðu umferð af ásettu ráði. Eins og áður segir aðhafðist lögregla þó ekki heldur fylgdi bílalestunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×