Innlent

Bjargað af þaki bifreiðar

Bjarga þurfti feðgum af þaki bifreiðar, sem þeir höfðu fest úti í miðri Skyndidalsá skammt frá Höfn í Hornafirði, um hádegisbil í gær. Feðgarnir eru erlendir ferðamenn og höfðu fengið bifreiðina á bílaleigu. Skyndidalsá rennur úr Jökulsá í Lóni og er hún mjög straumþung þar sem bíllinn festist. Björgunarsveitarmenn frá Hornafirði voru kallaðir út og komu á öflugum björgunarsveitarbíl til þess að bjarga mönnunum úr ánni. Bifreiðin var síðan dregin í land og gekk það vel að sögn lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×