Innlent

Jeppi valt á Miklubraut

Jeppi valt eftir árekstur við fólksbíl á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar laust eftir klukkan átta í gærmorgun. Miklar umferðartafir urðu í kjölfar óhappsins en draga þurfti báða bílana burt. Þrír farþegar voru í jeppanum auk ökumanns, allt erlendir ferðamenn. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í læri en taldi ekki ástæðu til að leita læknis að svo stöddu. Ökumaður fólksbílsins slapp ómeiddur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×