Innlent

Tæki og tól til fíkniefnaneyslu

Tæki og tól til fíkniefnaneyslu fundust í einu tjaldi í tjaldbúðum mótmælenda við Kárahnjúka í nótt, en engin fíkniefni. Nokkrir lögreglumenn fóru í búðirnar að loknum átökunum á vinnusvæðinu, sem áttu sér stað upp úr miðnætti, og var fíkniefnahundur með í för. Lögreglumenn óskuðu eftir að fá að leita í tjaldi eins útlendingsins, sem hann heimilaði, og fann hundurinn þá tólin sem lögregla lagði hald á. Málið fer svo sína leið um kerfið og má eigandinn búast við sekt fyrir að hafa tólin í fórum sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×