Innlent

Íkveikjutilraun á Egilsstöðum

Reynt var að kveikja í einbýlishúsi á Egilsstöðum í gær og er talið að barn eða börn hafi verið að verki. Nágranni við húsið sá hvar mikill eldur logaði við útidyr hússins og náði að slökkva hann með handslökkvitæki áður en slökkvilið kom á vettvang. Þá var útihurðin og karmarnir ónýt og rúður næst dyrunum sprungnar þannig að ekki munaði nema hársbreidd að eldurinn næði að læsa sig í gluggatjöld og annað innanstokks. Talið er að bensíni hafi verið hellt í útidyramottu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×