Innlent

Skemmdarverk ekki verið kærð

Engar kærur hafa borist lögregluyfirvöldum vegna skemmdarverka þeirra er unnar hafa verið á skiltum og mannvirkjum á virkjunarsvæði Kárahnjúka undanfarna sólarhringa. Hafa óprúttnir farið um svæðið með málningarbrúsa síðustu nætur og málað slagorð gegn virkjunarframkvæmdinni á skemmur og skilti á svæðinu. Ennfremur voru framin skemmdarverk á áburðarpokum en tjónið reyndist ekki nægilegt til að verktakinn, Suðurverk, kærði verknaðinn til lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×