Innlent

60 grömm af hassi fundust

Lögreglan á Akranesi handtók þrjá menn í gær, grunaða um fíkniefnamisferli. Við húsleit heima hjá þeim fundust rúmlega sextíu grömm af hassi sem einn þeirra viðurkenndi að eiga. Hann staðhæfir að það hafi verið ætlað til eigin neyslu en ekki sölu. Tveimur var sleppt að yfirheyrslum loknum en málið verður rannsakað nánar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×