Erlent

Súnnítar draga sig út úr viðræðum

Margir súnnítar sem koma að myndun nýrrar stjórnarskrár í Írak hafa dregið sig út úr viðræðunum í kjölfar þess að tveir úr samninganefndinni voru myrtir í gær. Einn súnnítanna í nefndinni segir ástandið í Írak núna vera þannig að engin leið sé að koma nokkru í verk. Ef ekki tekst að fá súnnítana inn í stjórnarskrárnefndina á ný er hætt við að það tefji verkið. Stefnt var að því að stjórnarskráin yrði tilbúin seinni partinn í ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×