Innlent

Eftirlit úr lofti

Sjónum verður sérstaklega beint að akstri utan vega í auknu eftirliti lögreglu á hálendi. Lögreglan á Hvolsvelli í samvinnu við Landhelgisgæsluna fór í hálendiseftirlit á þyrlunni TF-SIF á mánudag en samvinnuverkefnið heldur áfram það sem eftir lifir sumars. Lögregluliðin á Suðurlandi hafa einnig gert með sér samstarfssamning um reglulegar ferðir á hálendið í lögreglubifreiðum. Embættin skipta með sér fjölförnustu ferðamannastöðunum á hálendinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×