Innlent

Kastaðist tólf metra

Tvítugur maður slasaðist alvarlega í bílveltu við Gljúfurfoss, um 10 km frá Seyðisfirði, aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var einn á ferð er hann missti stjórn á bifreið sinni svo að hann lenti utan vegar. Í veltunni kastaðist hann tólf metra út úr bifreiðinni Farið var með manninn á sjúkrahúsið á Egilsstöðum og í kjölfarið var hann svo fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Í gærkvöld lá hann þungt haldinn í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×