Innlent

Líkamsárásarkæra á Blönduósi

Kona hefur kært aðra konu fyrir líkamsárás í félagsheimilinu á Blönduósi í nótt. Árásin er ekki talin vera alvarleg en svo virðist sem um smá stympingar hafi verið að ræða. Þá voru ellefu teknir fyrir hraðakstur í sérstöku verkefni Ríkislögreglustjóra í umdæminu í gærdag. Nokkur erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt, enda margt í bænum. Einn gistir fangageymslur vegna líkamsárásar sem varð í heimahúsi í bænum. Árásarmaðurinn verður yfirheyrður þegar hann hefur sofið úr sér ölvímuna. Enginn slasaðist alvarlega í árásinni. Að öðru leyti virðist sem skemmtanahald hafi farið vel fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×