Innlent

Fækkun í ýmsum brotaflokkum

Líkamsárásum og fíknefnabrotum í umdæmi sýslumannsins á Ísafirði fækkaði á síðasta ári miðað við árið á undan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu embættisins. Þá fækkaði innbrotum og þjófnuðum sömuleiðis. Í heildina eru skráð 170 hegningarlagabrot á Ísafirði árið 2004 sem er svipaður fjöldi og árið áður en nokkur fækkun frá árinu 2002. Eignarspjöll eru einna algengustu brotin í umdæminu, sem og þjófna'ðir og líkamsárásir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×