Innlent

Þrír gistu fangageymslur

Ein kona og tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á Selfossi í nótt vegna ölvunar og óláta. Konan var færð á lögreglustöðina eftir að hún hafði veist að annarri konu fyrir utan skemmtistað í bænum. Mennirnir tveir voru hins vegar með ófrið á götum úti. Þó þeir virtust skemmta sér hið besta fannst íbúum bæjarins þeir ekki eins skemmtilegir og voru þeir teknir úr umferð á meðan áfengisvíman rann af þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×