Innlent

Töluvert magn fannst við húsleit

Töluvert magn af amfetamíni og e-töflum fanst við húsleit fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík í miðbænum síðastliðinn mánudag. Í framhaldinu var erlend kona handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19. júlí. Á miðvikudag var síðan annar útlendingur handtekinn í tengslum við málið og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. júlí. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, sagði í samtali við fréttastofu að ekki sé hægt á þessari stundu að gefa upp hversu mikið af fíkniefnum var haldlagt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×