Innlent

Tilkynnt um skothríð við Grindavík

Lögreglunni í Keflavík var í gærkvöldi gert viðvart um skothríð í grennd við Grindavík og voru lögreglumenn þegar sendir á vettvang. Þar var hópur ungra manna að skjótast á með sjö litboltabyssum og var lagt hald á þær allar. Þær geta verið stórhættulegar ef viðeigandi öryggisbúnaður er ekki notaður og þær má ekki nota nema á lokuðum svæðum, að fengnum tilskildum leyfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×