Innlent

Hert landamæraeftirlit

Ríkislögreglustjóri hefur óskað eftir hertri landamæragæslu af ótta við að mótmælendur frá G8- fundinum í Skotlandi komi hingað til lands og mótmæli virkjanaframkvæmdum. Frést hefur af íslenskum mótmælendum þar og þá hefur verið sett upp heimasíða með ferðaleiðbeiningum fyrir mótmælendur. RÚV greindi frá þessu. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli vildi ekki tjá sig um málið og vísaði á Ríkislögreglustjóra. Ekki náðist í Þóri Oddsson, starfandi Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×