Innlent

Reiddist eftir lokun apóteks

Frestað var í tvö ár fullnustu tveggja mánaða fangelsisdóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær yfir 25 ára gömlum manni sem réðist á starfsmann apóteks. Maðurinn kom að apótekinu, æstur af amfetamínneyslu, rétt eftir lokun í fyrrasumar og vildi fá afgreiddar sprautur og nálar. Þegar hann fékk apótekið ekki opnað aftur sparkaði hann í bíl starfsmannsins sem var að aka burt og réðist á hann þegar hann stoppaði til að athuga skemmdir á bílnum. Manninum var gert að greiða starfsmanninum rúmar 210 þúsund krónur í bætur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×