Innlent

Meintum dópsala sleppt

Ekki var farið fram á frekara gæsluvarðhald yfir manni sem lögregla handtók um mánaðamótin síðustu, en við húsleit hjá honum fundust þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni, og var hann því látinn laus í gær. "Það var ekki talin ástæða til að halda honum lengur," segir Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík. Í fórum mannsins fundust einnig íblöndunarefni til að drýgja fíkniefni og búnaður til að koma efnum í sölupakkningar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×