Innlent

Varðhald fellt úr gildi

Hæstiréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að meintur kynferðisglæpamaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí eins og Lögreglustjórinn í Reykjavík hafði farið fram á. Komst rétturinn að því að sóknaraðili hefði ekki fært haldbær rök fyrir varðhaldi enda brot hans framin fyrir allöngu síðan. Sóknaraðili byggði mál sitt á að ætla mætti að hinn ákærði reyndi að torvelda rannsókn málsins ef hann yrði látinn laus fyrir þann tíma enda væri rannsókn lítt á veg komin og skýrslutöku af þeim tveimur stúlkum sem hann er grunaður um að hafa misnotað ekki lokið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×