Sport

Forseti Barcelona strippar

Forseti spænsku meistaranna í Barcelona, Joan Laporta, reif sig úr görmunum fyrir framan flugvallarstafsmenn í Madrid í gær. Öryggishlið sem Laporta þurfti að fara í gegnum, bjallaði í þrígang og þegar forsetinn reyndi í fjórða skiptið missti hann stjórn á skapi sínu. Vitni segja hann hafa hennt skóm sínum í loft upp og síðan klætt sig úr buxunum til að sýna fram á að hann hefði ekert að fela. Laporta bað síðan stuðningsmenn Barcelona afsökunar á uppátækjum sínum í dagblaðinu Marca.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×