Innlent

Grunur um morð á Íslendingi

Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins. Líkið fannst í fyrradag. Leigjandi manns hafði beðið húseigandann að geyma fyrir sig tunnu sem full var af steypu en hann sagðist vera að gera tilraunir með mismunandi steyputegundir. Þegar húseigandinn þurfti að færa tunnuna til opnaði hann hana og sá þá fætur standa upp úr steypunni. Talið er að líkið sé af Íslendingi. Wendermerwe, varðstjóri í lögreglunni í Boksburg, segir það stafa af því að fólkið sem var með manninum þegar hann dó mun hafa sagt að hann væri erlendur, kannski frá Íslandi. Að sögn Wendermerwes á eftir að bera kennsl á líkið, sem er af karlmanni um fertugt, og gæti það tekið nokkurn tíma. Krufningin verður á fimmtudag en á þessari stundu er ekki vitað hver dánarosökin var. Tvennt er í haldi lögreglunnar, 28 ára karlmaður og 43 ára kona. Þau segja að hinn látni hafi verið útlendingur og líklega frá Íslandi. Wendermerwe getur ekki svarað því hvort þetta fólk sé á sakaskrá því verið sé að bíða eftir niðurstöðum fingrafararannsóknar. Utanríkisráðuneytið bað þegar í stað sendiherra Íslands í Mósambík að setja aðalræðismann Íslands í Jóhannesarborg í málið og er beðið frekari tíðinda. Einnig hefur ríkislögreglustjórinn sent fyrirspurn í gegnum Interpol. Samkvæmt suðurafrískum fréttamiðlum er talið að um Íslending sé að ræða sem búið hafi í Suður-Afríku í áratug og síðast hafi sést til hans fyrir fimm vikum. Vinir hans hafi ekki óttast um hann því þeir hafi talið að hann væri á ferðalagi. Ef tilgátur lögreglu eru réttar er líklegt að tilefni morðsins hafi verið rán því maðurinn hafi nýverið selt íbúð í Jóhannesarborg og því verið með mikið fé á sér. Þá hefur lögreglan upplýsingar um að tvímenningarnir sem eru í haldi hennar hafi boðist til að aka manninum út á flugvöll.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×