Innlent

Sló mann með brotinni glerflösku

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum. Fjöldaslagsmál brutust á Lækjartorgi þetta kvöld og hafði hópur manna veist að ákærða sem varði sig með flöskunni. Dómarinn taldi í ljósi aldurs ákærða og málsatvika fært að skilorðsbinda refsinguna að hluta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×