Innlent

Ræningjans enn leitað

Lögreglan leitar enn að manni sem rændi töluverðu magni af örvandi lyfjum úr apótekinu Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu í hádeginu í gær. Hann huldi andlit sitt og hótaði starfsfólki með veiðihnífi. Talið er að hann sé á þrítugsaldri, u.þ.b. 170 sm á hæð og var hann í rauðbleikri peysu með svörtum röndum á ermum og með grænan hatt. Lögreglan biður þá sem einhverja vitneskju kunna að hafa um málið að láta sig vita.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×