Innlent

Í lopapeysu með grænan hatt

Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára. Þegar hann kom inn í apótekið hélt hann á hníf og ógnaði þannig starfsfólki en beitti hnífnum ekki. Hann fór inn fyrir afgreiðsluborðið og tók lyf sem talið er vera rítalín. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir mannsins eru beðnir um að láta lögregluna í Reykjavík vita.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×