Innlent

Vopnað rán í Domus Medica

Vopnað rán var framið í Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu fyrir stundu. Maður með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Ræninginn beitti hnífnum þó ekki en hafði lítilræði af lyfjum á brott með sér. Talið er að hann hafi tekið með sér rítalín en það liggur ekki ljóst fyrir þar sem enn er verið að rannsaka vettvang. Leit lögreglu að ræningjanum stendur yfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×