Innlent

Ræningjarnir yfirheyrðir í dag

Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni. Þegar þeir voru handteknir á bíl skömmu eftir ránið voru þeir báðir í annarlegu ástandi og óhæfir til að aka bíl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×