Innlent

Þriggja bíla árekstur í Keflavík

Laust eftir klukkan fimm, síðdegis í dag, varð þriggja bíla árekstur á gatnamótum Aðalgötu og Suðurvalla í Keflavík. Að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki við áreksturinn en bílarnir, tveir jeppar og fólksbíll, voru allir óökufærir á eftir. Að sögn lögreglu vildi slysið þannig til að einum bílanna var ekið af Suðurvöllum inn á Aðalgötu, sem er aðalbraut. Þar lenti hann á einum bílanna sem svo aftur fór við þann árekstur yfir á þann þriðja. Fyrr um daginn kærði lögregla tvo ökumenn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni og þrír voru boðaðir með bíla sína til lögboðinnar skoðunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×