Innlent

Í gæsluvarðhaldi fram í ágúst

Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag framlengingu gæsluvarðhalds yfir tveimur litháenskum karlmönnum, 55 og 27 ára gömlum, sem reyndu að smygla um fjórum kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu 30. júní síðastliðinn. Héraðsdómur Austurlands hafði orðið við beiðni Sýslumannsins á Seyðisfirði um gæsluvarðhald til 1. september, en þann tíma stytti Hæstiréttur til 12. ágúst. Grunur leikur á að hluti efnisins sem Litháarnir reyndu að smygla í Citroen- bifreið sé kókaín. Mennirnir segjast bara hafa verið að flytja bifreið, til og frá landinu, fyrir ónefndan aðila.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×