Innlent

Þrír handteknir fyrir innbrot

Lögreglan í Reykjavík handtók undir morgun þrjá pilta á aldrinum 14 til 17 ára á bíl á Hringbrautinni eftir að þeir höfðu brotist inn í blómabúð við Hagamel. Vitni að því gátu vísað á piltana. Þeir eru jafnframt grunaðir um að hafa brotist inn í bensínstöð Esso við Nesveg og Europris við Fiskislóð í fyrrinótt og eru þeir nú til yfirheyrslu. Þá var brotist inn í BT í Spönginni í nótt en ekki er enn vitað hvort piltarnir voru þar á ferð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×