Innlent

Enn sett ofan í við sýslumann

Enn fá sýslumenn á baukinn frá dómurum fyrir slægleg vinnubrögð við framgang refsimála. Nú síðast setur Héraðsdómur Reykjaness ofan í við Sýslumann í Keflavík þar sem sýslumaður birti síbrotamanni ekki ákæru fyrr en 30 mánuðum eftir að rannsókn lauk. Í dóminum segir að dráttur þessi sé óhæfilegur og hafi ekki verið skýrður. Eins og nokkrum sinnum áður upp á síðkastið nýtur sakborningurinn trassaskapar sýslumanns og hlaut hann vægari dóm en ella. Að minnsta kosti þrjú mál af sama toga hafa komið upp á þessu ári og varða þau öll óhæfilegan drátt sýslumannsins í Hafnarfirði á að birta ákærur í sakamálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×