Innlent

30 grömm urðu 77 með blöndun

31 árs gamall maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en undir lok febrúar sl. fann lögreglan í Kópavogi tæp 77 grömm af amfetamíni á heimili hans. Maðurinn játaði brot sitt. Hann kvaðst hafa keypt 30 grömm af efninu, en ríflega tvöfaldað magnið með því að blanda í það mjólkursykri. Dómurinn var skilorðsbundinn í tvö ár og fellur refsing niður að þeim tíma liðnum, haldi maðurinn sig innan ramma laganna. Maðurinn þarf einnig að greiða fyrir rannsókn á amfetamíninu sem og að greiða lögmanni sínum, alls rúmlega 131.000 krónur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×