Innlent

Fundu tæp 200 grömm af hassi

Maður á þrítugsaldri hlaut í gær skilorðsbundið mánaðarfangelsi auk 180.000 króna sektar fyrir brot á fíkniefnalöggjöf og umferðarlögum. Hann var að auki sviptur ökuleyfi í þrjú ár og þarf að greiða kostnað upp á 203.501 krónu. Í byrjun desember fann lögregla 194 grömm af hassi á heimili mannsins. Þá var hann í janúar gripinn með lítilræði af ýmsum fíkniefnum, amfetamíni, e-töflum, tóbaksblönduðu hassi og kókaíni. 18. apríl sl. ók hann svo ölvaður yfir hámarkshraða á Kringlumýrarbraut í Fossvogi. Dómurinn var upp kveðinn í Héraðsdómi Reykjaness.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×