Innlent

Svara spurningum í ágúst

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, eru báðir í sumarfríi fram í ágúst. Hjá embættinu fengust þau svör að trúlega gætu þeir einir svarað spurningum tengdum rannsókninni á Baugsmálinu svokallaða, en komið hefur fram alvarleg gagnrýni á hana og eins á skipulag embættisins. Í álitsgerð sem Jónatan Þórmundsson lagaprófessor vann fyrir Baug gagnrýnir hann þá skipan mála hjá embættinu að rannsókn mála og saksókn skuli vera á einni hendi. Þá setur hann spurningamerki við aðgerðir lögreglu þau tæpu þrjú ár sem rannsóknin stóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×