Innlent

Leit að líki í Grafarvogi hætt

Leit að líki í Grafarvogi í Reykjavík sem hófst síðdegis í gær bar ekki árangur og var henni hætt upp ur miðnætti. Þá höfðu björgunarsveitarmenn, lögregla og slökkviliðsmenn kafað, siglt um voginn og gengið fjörur auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. Á útfallinu var net strengt fyrir straumin úr voginum, en án árangurs. Einskis er saknað en þrátt fyrir það véfengir löreglan ekki þær ábendingar sem bárust. Líklegt er talið að eitthvað annað en lík sé á reki í voginum. Leit verður ekki framhaldið í dag nema að nýjar upplýsingar berist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×