Innlent

Líks leitað í Grafarvogi

Lögreglumenn og slökkviliðsmenn leituðu í gærkvöld að líki við Gullinbrú í Reykjavík. Leitin hófst eftir að barn sagði frá því að það hefði séð lík á floti þar sem það var á ferð. Að sögn lögreglu var lýsing barnsins þannig að ekki var annað hægt en að hefja leit af fullri alvöru. Að auki höfðu fullorðnir einstaklingar séð þúst úti í vatninu en þeir voru það langt frá að þeir gátu ekki fullyrt hvort um lík eða eitthvað annað væri að ræða. Margir lögreglumenn og slökkviliðsmenn voru kallaðir til leitar. Hún gekk illa framan af en vonast var að eitthvað myndi skýrast þegar fjaraði út í kringum miðnætti. Leitin hafði ekki borið árangur þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×