Innlent

Barði niður bílstjóra

22 ára gamall maður var í gær dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað snemma á laugardagsmorgni í febrúar í fyrra. Ungi maðurinn sló niður sér sjö árum eldri mann og veittist að honum með spörkum. Hann játaði, en taldi fórnarlambið bera sök að hluta með því að hafa ekið sendibifreið utan í félaga sinn. Annar félagi sparkaði þá í bílinn og bílstjórinn vatt sér út reiður. Hann sagði félaga árásarmannsins hafa í leikaraskap kastað sér á bílinn. Dómurinn, sem er skilorðsbundinn í tvö ár, var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×