Innlent

Bifhjól fauk út af

Um klukkan fjögur síðdegis í gær fauk bifhjól út af veginum á Kjalarnesi. Gríðarlegt hvassviðri og rigning olli því að víða var illfært um vegi landsins og var ástandið sérlega slæmt á Vesturlandsvegi. Ökumaður bifhjólsins slapp ómeiddur og hjólið skemmdist lítið. Í kjölfar slyssins var gefin út viðvörun til fólks um að takmarka ferðir sínar um Vesturlandsveg allt frá Mosfellsbæ til Borgarness. Ökumenn með fellihýsi og aðra aftaní vagna voru sérstaklega varaðir við að vera á ferðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×