Innlent

Húsbíll fauk út af

Síðdegis í gær fauk húsbíll út af veginum við Böðvarsholt í Staðarsveit. Bíllinn er gjörónýtur en allir sem í bílnum voru sluppu nokkuð vel og fengu að fara heim eftir læknisskoðun. Að sögn lögreglu í Ólafsvík var helgin lífleg á Snæfellsnesinu en gekk stórslysalaust fyrir sig. Fjöldi fólks var á færeyskum dögum í Ólafsvík en margir héldu snemma heim vegna veðurs. Talsvert magn fíkniefna fannst á hátíðinni enda gerði lögreglan sérstakt átak í þeim efnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×