Innlent

Enginn handtekinn í nauðgunarmáli

MYND/Vísir
Enginn hefur enn verið handtekinn vegna nauðgunarmáls sem kom upp í Ólafsvík í fyrrinótt. Fimmtán ára stúlka kærði nauðgun og taldi að sér hefði verið byrlað ólyfjan. Tvær aðrar stúlkur tilkynntu lögreglu líka að þær teldu að þeim hafi verið byrlað einhverju álíka. Nóttin var róleg hjá lögreglunni í Ólafsvík og veðrið eins gott og það var slæmt í fyrrinótt. Gestum á Færeyskum dögum sem haldnir voru í bænum fækkaði töluvert í gær eftir veðurhaminn nóttina á undan. Þrátt fyrir það var nokkuð fjölmenni í bænum en allt gekk fyrir sig án mikilla vandræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×