Innlent

Síminn skylt að greiða leigu

Landssíma Íslands var í gær gert að greiða fyrirtækinu Gullveri frá Stykkishólmi rúma eina milljón króna ásamt dráttarvöxtum sem leigu vegna fjarskiptamasturs fyrirtækisins á lóð Gullvers. Hafði Gullver keypt húsnæði og lóð að Aðalgötu 7 af ríkissjóði árið 2001 en á henni stóð mastur sem Síminn átti og notaði. Töldu eigendur Gullvers að Síminn ætti að greiða leigu vegna eigendaskiptanna en Síminn féllst ekki á það. Féll dómur Héraðsdóms Reykjavíkur Gullveri í hag í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×