Erlent

Engar samningaviðræður í gangi

Talsmenn bandarískra og írakskra hersveita segja að þeir eigi í viðræðum við leiðtoga uppreisnarmanna í Írak, klerka og hópa sem tengdir eru súnní-aröbum til að fá fleiri að pólitískri uppbyggingu landsins. Þetta kom fram á blaðamannfundi sem haldinn var í Bagdad í dag. Aðspurðir neituðu talsmennirnir hins vegar að þetta séu samningaviðræður hvers konar og sögðu þetta aðeins vera framhald viðræðna sem fram hafi farið undanfarna mánuði. Þeir voru að hluta til að svara grein sem birtist í Sunday Times í dag þar sem því er haldið fram að Bandaríkjaher fundi nú stíft með uppreisnarmönnum til að reyna að stilla til friðar í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×