Innlent

Rólegt hjá lögreglunni í Reykjavík

Svo virðist sem rigningin í nótt hafi orðið þess valdandi að rólegt var að gera hjá lögreglunni í Reykjavík. Að sögn varðstjóra var fremur lítið um útköll. Í Hafnarfirði kom upp eitt fíkniefnamál við hefðbundið eftirlit þar sem einn aðili var tekinn með lítilræði af amfetamíni. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir, grunaðir um ölvun við akstur, auk þess sem nokkuð var um útköll vegna hávaða í heimahúsum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×