Innlent

Slógust við lögreglumenn

Hópur manna á Eyrarbakka lenti í slagsmálum við þrjá lögreglumenn frá Selfossi í nótt. Lögreglumenn sáu hvar maður sparkaði í höfuð annars manns og hugðust þá handtaka hann. Félagar árásarmannsins réðust þá að lögreglumönnunum og út brutust mikil átök þar sem lögreglan hafði betur. Árásarmaðurinn var handtekinn og fékk að sofa úr sér í fangageymslum á Selfossi. Þá voru 13 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Selfosslögreglunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×