Innlent

Maður sem leitað var að fundinn

Maðurinn sem lýst var eftir á Austurlandi í gær er kominn fram. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Eskifirði fór hann ranga leið á leið frá Djúpavogi til Egilsstaða í fyrradag og lenti á torfærum vegslóða og festi bíl sinn. Í stað þess að aka veginn um Öxi milli Berufjarðar og Skriðdals, eins og hann ætlaði, ók hann inn Fossárdal úr Berufirði. Eftir að hann festi bíl sinn hélt hann af stað fótgangandi til byggða um miðnætti í fyrrinótt og kom að bænum Hamarsseli í Hamarsfirði um hálfníuleytið gærkvöldi. Ekkert amaði að manninum utan þess að hann var þreyttur og svangur en hann var auk þess með lélegan skóbúnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×